Þrautir Herkúlesar

Njóttu drykkjarins

mánudagur, apríl 07, 2003

já, ég hata suma strætókeyrara! ég er viss um að ég er sá eini sem er svona innanbrjósts en mig langar að tjá mig um þetta. T.d. rauðhærða fíbblið sem keyrir sexuna (skrýtið hvað ég þoli illa rauðhærða karlmenn), hann er alltaf með eikkað bögg og gleymir alltaf að vera með strætómiða til sölu! kellingin sem keyrir sexuna man yfirleitt eftir miðunum, en heldur alltaf að maður sé að svindla! en nóg kvart yfir strætógaurum, þeir eru margir góðir!

Danska er nokkuð skrýtið fag (eða "skrítið fag", skiptir engu). Ég er t.d. ekki búinn að læra neina dönsku síðan í grunnskóla, og þó hef ég eitt næstum tveimur önnum í dönsku hundrað og tvöhundruð. Þetta eru svona tímar sem þú lærir aldrei fyrir, og það skiptir engu máli! ég gæti þess vegna tekið lokaprófið í byrjun annar. Dönskukennararnir eru samt prýðisgóðir. Alla vega Guðrún (hún fær rós þegar/ef ég útskrifast!). Hans Uwe var fínn en núna er honum orðið svo illa við mig að hann er ekki jafn fínn. Fyrirlesturinn minn um Jennu Jameson gæti spilað þar inní.

Djöfull er katrín.is léleg í badminton! ég gæti unnið hana ení pleis, ení tæm!

Ég elska
fólk
ég er mannæta

_

hvað ert þú?

í boði mín