Þrautir Herkúlesar

Njóttu drykkjarins

föstudagur, nóvember 29, 2002

Jibbí jei!!!!! eða eikkað...
Skólinn er búinn (fyrir utan prófin)!!!! Núna er ég að fara á Selfoss yfir helgina að gista hjá Gissuri (eða Tinna eins og hann er kallaður á Selfossi, veit ekki af hverju), þarf að taka rútuna en ætti að lifa það af því ég get spjallað við Dísu á meðan.

miðvikudagur, nóvember 27, 2002

Þetta blogg mitt á nú eftir að liggja niðri þangað til prófin eru búin býst ég við. Þau klárast föstudaginn 13. by the way.
Ef einhver hefur áhuga á að kaupa 48 klósettrúllur á 1800, 28 eldhúsrúllur á 2000 kall, 10kg af þvottaefni á 3000 kall eða 50 ruslapoka á 1300 kall þá er síminn hjá mér 8677076!
Þetta er til þess að ég komist til Skotlands í æfingabúðir um páskana með ÍR, sem sagt mjög gott málefni! Einn af þjálfurunum hjá Everton verður með okkur þarna úti þannig að þetta er mjög spennandi! Auk þess eru þetta mjög góð tilboð á lífsnauðsynjum!
Jæja, best að fara að sofa... lokapróf í eðlisfræði á morgun!
En hvað sem þið gerið, ekki ýta á ÞETTA!
Og já, grein ( sem átti að vera korkur) eftir mig á Huga