Þrautir Herkúlesar

Njóttu drykkjarins

laugardagur, nóvember 16, 2002

Þið sem eruð að pæla hvað í andskotanum þessi titill hjá mér ("Ef þú færð hana ekki hjá mér þá er hún ekki til") eigi að þýða, pælið bara aðeins lengur.
hey, þið sem hafið prófað CM (þjálfaraleikinn frábæra) ættuð að tékka á www.hattrick.org. Á þessari síðu er hægt að búa sér til lið (íslenskt eða erlent) og keppa á móti öðrum liðum. Leikmenn liðanna eru ekki til í alvörunni (eins og í CM) en þetta er samt mjög gaman!
Þú byrjar með hundlélega gaura en svo geturu keypt nýja eða eflt unglingastarfið hjá félaginu og fengið góða leikmenn þaðan. Þeir sem nenna þessu eiga örugglega ekki eftir að iðrast þess. Endilega e-mailið til mín á doktorsindri@hotmail.com ef þið búið til lið og látið mig vita hvernig gengur! Þið getið líka skorað á mig, liðið mitt heitir Fram.
Ég veit eiginlega ekki alveg af hverju ég skírði það Fram því ég er nú meiri KA-maður, held samt líka doldið upp á Fram.
Alla vega tékkið á þessu þegar þið hafið ekkert að gera!
jæja, það eru allir að prófa þetta... best að vera bara næstur!
ég huxa að ég tali nú mest um það hvað Atli Eðvalds er lélegur þjálfari hérna en audda tala ég líka um
það sem er í gangi hjá mér það og það skipti.
Ég veit ekki hvort ég verð mjög duglegur en við sjáum bara til.