Þrautir Herkúlesar

Njóttu drykkjarins

fimmtudagur, febrúar 27, 2003

ef allt er í rugli klikkið þá hérna! ég er eikkað að prófa að hafa spurningu vikunnar dæmi... gengur frekar illa enda er alltaf verið að trufla mig, líklega af því ég er í vinnunni...

miðvikudagur, febrúar 26, 2003

jæja, hjálpaði Uglu með linkana á blogginu hennar og gaf Katrínu verðlaunin í dag! þvílíkur Herkúles! ég ætla að hafa svona leik aftur bráðlega, svo stei tjúnd!

mánudagur, febrúar 24, 2003

minni á spurningaleikinn! sigurvegari krýndur í kvöld eða á morgun! sjá neðar

sunnudagur, febrúar 23, 2003

ég fór aftur á leikritið á laugardaxkveldinu! vantaði eitthvað af bröndurum og svona en engu að síður stórkostleg sýning! ég nenni svo lítið í skólann á morgun, ég er nebbla ekki búinn að gera rassgat í fríinu! átti að lesa dönskubók og gera efnafræðiskýrslu og undirbúa mig fyrir próf í stærðfræði og efnafræði! í staðinn las ég 20 blaðsíður í dönsku og lærði bogfimi og boggs! ekki alveg að gera sig hérna hjá mér.... Svo var Þóra að segja mér skandal sem hún gerði á ballinu, hún sagði við Diðrik úr matsölunni að hún girndist hann kynferðislega! og kúlistinn hann Diðrik sagði eikkað: "já, mig grunaði það líka"... hahahahahaha