Þrautir Herkúlesar

Njóttu drykkjarins

föstudagur, mars 07, 2003

jæja, lítur út fyrir að hárið á mér gæti verið verra... þótt Svenna og einhverjum öðrum finnist að ég eigi að snoða mig. Spurningaleikurinn olli ekki miklum vinsældum, en Dísa vann, Krissa var í öðru og Gissur í þriðja... ég er núna í góðum fíling að hlusta á Mr.Jinx í sólarblíðunni og fer svo að drífa mig á gamalkunnar slóðir austur að Skógum. Það verður örugglega mjöööög rólegt en ég fíla rólegheitin vel. Fór á Jackass í gær, þökk sé Birnu og Þóru og fleirum. Djöfull eru þessir gaurar fyndnir! ég var með verki í andlitinu á eftir, ég hló svo mikið. En svörin við spurningunum eru þessi:
Spurning 1: ehh, Bridge (spurning með íþrótt...)
Spurning 2: audda Man.Utd.
Spurning 3: það var Katrín
Spurning 4: spænska
Spurning 5: jáhh, ég er eikkað að drepast í mjöðminni og svona (hmmm, hljómar svoldið eins og ég sé áttræð amma)
Spurning 6: Spila Counter-strike og hangi á MSN (sad but true)
Spurning 7: aulinn hann Atli Eðvalds
Spurning 8: á Sensus Tech (seig Dísa!)
Spurning 9: já, Örlagasystur og Antoine var alveg magnaður hertogi eins og ég hef áður sagt.
Spurning 10: þrjár, með heppni, því mamma bakaði þær seint á bolludagskvöldið. Ekki alveg að standa sig gamla.

mánudagur, mars 03, 2003

nýr spurningaleikur! í verðlaun er hálsmen með tánöglinni minni á... neinei, en ef einhver hefur áhuga þá er menið til sölu á góðu verði! nei, hin raunverulegu verðlaun eru afsláttarmiði á Serrano í Kringlunni, 499 krónur fyrir frábæra burrito og kók... úff, mikið að keppa að! verðlaunin fær sá sem er fyrstur að svara flestu rétt fyrir föstudaginn!

Spurning 1: ég er nýbyrjaður að stunda "íþrótt" og fékk verðlaun fyrir á laugardaginn, hver er íþróttin?
Spurning 2: Uppáhalds liðið mitt í enska boltanum er ekki West Ham heldur?
Spurning 3: Hver átti að mínu mati best skilið að vinna síðustu keppni?
Spurning 4: Hvert er mitt þriðja tungumál í skólanum?
Spurning 5: Af hverju er ég ekki að æfa fótbolta þessa dagana?
Spurning 6: Hvað geri ég í staðinn?
Spurning 7: Hver þjálfar landslið Íslands í fótbolta?
Spurning 8: Hvar fór ég í klippingu?
Spurning 9: Á hvaða leikrit fór ég síðast og hver var "alveg magnaður" í þeirri sýningu?
Spurning 10: Hvað fékk ég margar bollur á bolludaginn?
Svarið svo bara í comments eða á hotmail...